Lýsing
Sérpöntun - Afhending ca 1-2 virkir dagar.
Lykla-Pétur vírusvörn fyrir Windows (F-PROT Antivirus) er íslensk vírusvörn sem byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu helstu veiruvarnasérfræðinga hérna heima og erlendis..
Lykla-Pétur er eitt fremsta veiruvarnaforritið á markaðnum í dag. Viðmótið er allt á íslensku. Heimilisútgáfa Lykla-Péturs kostar aðeins 4.900 kr. fyrsta árið. Heimilisútgáfan gildir fyrir allar vélar á einu heimili, eða allt að 5 tölvur.
Lykla-Pétur
- Býður upp á:
- Sjálfvirka skanna sem fylgjast með öllum skrám þegar skrár eru opnaðar, vistaðar eða afritaðar.
- Sjálfvirka skráarkerfisvörn sem býður upp á alsjálfvirka vörn fyrir allar skrár á tölvunni.
- Sjálfvirka hreinsun veira, orma og Trójuhesta án þess að skemma lögleg gögn.
- Háþróðaða reglusafnaleit sem verndar tölvuna gegn nýjum og jafnvel óþekktum veirum.
- Alsjálfvirkar uppfærslur á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu.
- Vafrara- og tölvupóstvörn sem býður upp á sjálfvirka rauntíma vörn fyrir allar skrár sem sem tölvan sækir inn á skráarkerfi tölvunnar.
- Vörn gegn hættulegum ActiveX skrám.
- Sóttkví til að eingangra smitaðar og grunsamlegar skrár.
- Háþróaðan skipanalínuskanni fyrir þá lengra komnu.
- Ítarlega upplýsingaskráning í kerfisgögn og leitarskýrslur.
- Útilokanir á skrám, möppum eða skáargerðum fyrir sjálfvirka og handvirka skönnun.